| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Rafael Benítez gerðist framkvæmdastjóri Chelsea á nýliðinni leiktíð og þrátt fyrir mikinn mótbyr náði hann all góðum árangri þegar upp var staðið. Hann kom liðinu í Meistaradeildina á næstu leiktíð  og vann Evrópudeildina. Rafa, sem veifar á myndinni að neðan í átt að Kop stúkunni í heimsókn Chelsea til Liverpool, er enn vinsæll og virtur hjá stuðningsmönnum Liverpool en vilja þeir fá hann aftur sem framkvæmdastjóra? Við könnuðum málið hjá ykkur núna í vor.

Í ljós kom að naumur meirihluti ykkar vill ekki fá Rafael Benítez aftur til Liverpool. Þrír af hverjum tíu vilja Spánverjann aftur í stöðu framkvæmdastjóra en drjúgur hluti er ekki viss í sinni sök. Það liggur þó fyrir núna að Rafael Benítez er ekkert á leiðinni til Liverpool því hann réði sig á dögunum til Napólí.  


Greidd og gild atkvæði voru 169.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan