| Sf. Gutt

Allt að verða tilbúið með Iago

Fregnir herma að vistaskipti Iago Aspas séu að verða frágengin. Hann er búinn að fara í læknisskoðun í Liverpool. Hún fór fram á Melwood í fyrradag eftir því sem fréttamenn Sky sports greina frá og nú á aðeins eftir að ganga frá formsatriðum. Í Liverpool Echo er sagt að Liverpool muni borga Celta Vigo 7,7 milljónir sterlingspunda fyrir spænska sóknarmanninn.
 

Í Liverpool Echo í dag eru þrír leikmenn helst nefndir sem tilvonandi leikmenn Liverpool. Þetta eru þeir  Tiago Ilori, Henrikh Mkhitaryan og Luis Alberto. Liverpool á að hafa boðið í varnarmanninn Tiago, sem er á mynd hér að ofan, en tilboðinu verið hafnað. Forráðamenn Liverpool hafa þó ekki lagt árar í bát.

Armeninn Henrikh leikur með Shakhtar Donestk og þykir magnaður miðjumaður. Hann skoraði eitt marka Armena þegar þeir burtuðu Dani 0:4 í Kaupmannahöfn í vikunni. Útsendarar Liverpool munu hafa verið á leiknum. Luis er leikmaður Sevilla en Barcelona á forkaupsrétt á honum. Möguleg vistaskipti ráðast því af áhuga Spánarmeistaranna eftir því sem kemur fram í Liverpool Echo.
 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan