Hvernig stóð Brendan sig?

Brendan Rodgers
Deildarleikir: 38.
Sigrar: 16.
Jafntefli: 13.
Töp: 9.
Hlutfall: 42%.

Mat: Þetta var auðvitað leiktíð breytinga hjá Liverpool undir stjórn Brendan Rodgers. Liðið sýndi stórleiki og raðaði inn mörkum en inn á milli komu úrslit sem ollu vonbrigðum. Augljós veikleiki var að ekki tókst að vinna neitt af efstu sex liðunum nema Tottenham.

Brendan fékk líka að finna fyrir því í bikarkeppnunum. Sérstaklega var tapið í 4. umferð F.A. bikarsins á móti Oldham, sem leikur í fyrstu deild, niðurlægjandi. Liverpool endaði í sjöunda sæti og það var rétt staða miðað við getu liðsins. Luis Suarez bar liðið framan af leiktíðinni áður en hann varð sér til skammar með því að bíta Branislav Ivanovic og fá 10 leikja bann fyrir.

Brendan gekk misjafnlega í leikmannakaupum. Fabio Borini og sérstaklega Joe Allen sem kostaði 15 milljónir sterlingspunda ollu vonbrigðum en hann virðist hafa hitt í mark með þá Daniel Sturridge og Philippe Coutinho. Hann fékk drjúga peninga frá eigendum Liverpool en nú er framtíð Luis í óvissu. Liverpool lék þó vel undir lok leiktíðarinnar og form liðsins á þeim tíma ætti að gefa Brendan von um frekari framþróun ef vel tekst til með fjárfestingar í leikmönnum í sumar.

Niðurstaða: Árangur í meðallagi hjá Brendan. Ekki góður, ekki frábær og liðið er enn óravegu á eftir liðunum sem berjast um titilinn og líka á eftir þeim sem voru að berjast um sæti í Meistaradeildinni. Þarf að byrja næsta keppnistímabil af miklum krafti.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

