| Sf. Gutt

Peter Gulacsi farinn

Ungverski markmaðurinn Peter Gulacsi er farinn frá Liverpool. Hann er búinn að gera samning við austurríska liðið Red Bull Salzburg. Peter kom upphaflega til Liverpool sem lánsmaður frá MTK Hungaria en sumarið 2008 var gengið frá kaupsamningi. Peter lék aldrei með aðalliði Liverpool, nema æfingaleiki, en sat á varamannabekknum í 51 leik. Þar af var hann 18 sinnum á bekknum á nýliðinni leiktíð. Hann fór þrívegis í lán og lék með Hull, Tranmere og Hereford. Þótti hann standa sig vel í þessum lánsdvölum.

Peter varð varaliðsmeistari og Englandsmeistari varaliða með Liverpool vorið 2008. Hann hefur verið með efnilegri markmönnum Ungverja og leikið með yngri landsliðum þeirra nú síðast undir 21. árs liðinu. Við óskum Peter góðs gengis með nýja liðinu sínu.  

Segja má að Peter hafi verið síðustu árin þriðji markmaður Liverpool á eftir Jose Reina og Brad Jones. Nú er að sjá hvort Brendan Rodgers vill kaupa nýjan markmann í það hlutverk. Tveir ungir markmenn, Tyrell Belford og Jamie Stevens, hafa fyrir utan Peter yfirgefið félagið núna í vor ef rétt er skilið. Danny Ward þykir mjög efnilegur og kannski verður hann þriðji markmaður.  

Hér má kynna sér feril Peter Gulacsi á LFCHISTORY.NET.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan