| Sf. Gutt

Kolo Toure semur við Liverpool!

Miðvörðurinn sterki Kolo Toure er búinn að gera samning við Liverpool. Hann gengur formlega til liðs við félagið þann 1. júlí en þá rennur samningur hans við Manchester City út.

Kolo er 32. ára gamall oig hefur leikið á Englandi frá því hann kom til Arsenal 2002. Hann lék þar til hann gekk til liðs við Manchester City sumarið 2009. Hann hefur orðið enskur meistari og Skjaldarhafi bæði með Arsenal og Manchester City auk þess sem hann vann F.A. bikarinn hjá Lundúnafélaginu. Vonandi nær hann að bæta við verðlaunasafn sitt hjá Liverpool!

Kolo býr yfir geysilega mikilli reynslu og getur leikið nokkrar stöður í vörninni. Hann var reyndar fyrst miðjumaður en síðar bakvörður. Síðustu árin hefur hann jafnan verið miðvörður. Hann hefur leikið 103 landsleiki fyrir Fílabeinsströndina og verður fyrsti leikmaður þess lands til að leika með Liverpool. 

Við bjóðum Kolo velkominn til Liverpool og vonum að honum vegni vel hjá félaginu.  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan