| Sf. Gutt

Danny Wilson farinn

Danny Wilson hefur yfirgefið Liverpool og gert samning við Hearts. Hann lék sem lánsmaður hjá félaginu frá því eftir áramótin og fram á vorið. Búist var við því að hann myndi gera fastasamning við Hearts og er nú svo orðið. Danny gerði þriggja ára samning við Hearts.
 
Danny stóð sig mjög vel hjá Hearts og er mikil ánægja hjá félaginu með að hann skyldi gera samning við það. Danny fékk silfurverðlaun í Deildarbikarnum í vetur en Hearts tapaði óvænt í úrslitum 3:2 fyrir St. Mirren. Reyndar gekk illa hjá Hearts á lokasprettinum og það á að gera betur á næstu leiktíð. 

Danny Wilson kom til Liverpool sumarið 2010. Rafael Benítez mun hafa lagt grunn að kaupum á honum frá Glasgow Rangers en Roy Hodgson gekk frá þeim. Leiktíðina áður hafði Danny verið kjörinn efnilegasti leikmaður Skotlands bæði af leikmönnum og blaðamönnum. Hann þótti efnilegasti miðvörður Skota í langan tíma en náði aldrei að festa sig í sessi hjá Liverpool og lék aðeins níu leiki með aðalliðinu. Hann var um tíma í láni hjá Blackpool og Bristol City á meðan hann var á mála hjá Liverpool.

Danny komst í aðallandslið Skota á meðan hann var hjá Liverpool og skoraði í sínum fyrsta landsleik þegar Skotland vann Færeyjar 3:0. Hann hefur leikið fjóra landsleiki. Við óskum Danny alls góðs í framtíðinni og þökkum framlag hans. 

Hér má kynna sér allt það helsta um Danny Wilson á LFCHISTORY.NET.

  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan