| Sf. Gutt

Carra kvaddur - Rafael Benítez

Á eftir Gerard Houllier kom Rafael Benítez. Hann gerði Jamie að einum besta miðverði á Englandi og jafnvel í Evrópu. Undir stjórn Rafa náðu þeir Jamie og Sami Hyypia stórkostlegu samstarfi. En það var þessi magnaði skapstyrkur og ósérhlífni sem Rafa mat mest í fari Carra. 

,,Það er þessi skapstyrkur sem er ungum krökkum til eftirbreytni. Hann er svo kappsamur og reynir alltaf að vinna. Með þessu sendir hann skilaboð og þá sérstaklega til þeirra sem eru að koma í gegnum unglingastrafið í Akademíunni. Hann var mikilvægur í liðinu og líka fyrir mig sem framkvæmdadtjóra því hann lagði hart að sér á hverri einustu æfingu."

,,Við komumst í marga úrslitaleiki á þessum sex árum og þá komu oft upp aðstæður sem maður þurfti að sýna svona skapstyrk. Við sjáum öll fyrir okkur þegar hann lá á vellinum í Istanbúl með krampa. Svona andlegan styrk vill maður hafa hjá leikmönnum sínum." 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan