| Sf. Gutt
Rafael Benítez bætti titli í safn sitt í kvöld þegar Chelsea vann Evrópudeildina. Flest spjót hafa staðið á honum eftir að hann var ráðinn þangað en hann getur nú yfirgefið Chelsea, eins og til stóð, nokkuð sáttur.
Trúlega hafa margir stuðningsmenn Liverpool glaðst fyrir hönd Rafa í gærkvöldi þegar hann stóð uppi sem sigurvegari. Chelsea mætti Benfica frá Portúgal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fór fram í Amsterdam. Benfica var miklu betra liðið í fyrri hálfleik en ekkert hafði verið skorað í hálfleik. Fernando Torres kom Chelsea svo yfir gegn gangi leiksins en Oscar Cardozo jafnaði úr víti. Allt leit út fyrir framlengingu þegar Branislav Ivanovic skoraði sigurmarkið með skalla eftir horn þegar komið var fram í viðbótartíma. Ótrúleg endalok!
Chelsea heldur því báðum Evrópubikurunum á sama tíma og slíkt hefur ekki gerst áður. Evrópubikarinn er enn í vörslu Chelsea frá því í fyrra. Chelsea varð um leið fyrst enskra liða til að vinna allar Evrópukeppnirnar. Evrópubikarinn, Evrópukeppni bikarhafa, Evrópudeildina og Stórbikar Evrópu.
TIL BAKA
Rafa bætir titli í safnið!
Rafael Benítez bætti titli í safn sitt í kvöld þegar Chelsea vann Evrópudeildina. Flest spjót hafa staðið á honum eftir að hann var ráðinn þangað en hann getur nú yfirgefið Chelsea, eins og til stóð, nokkuð sáttur. Trúlega hafa margir stuðningsmenn Liverpool glaðst fyrir hönd Rafa í gærkvöldi þegar hann stóð uppi sem sigurvegari. Chelsea mætti Benfica frá Portúgal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fór fram í Amsterdam. Benfica var miklu betra liðið í fyrri hálfleik en ekkert hafði verið skorað í hálfleik. Fernando Torres kom Chelsea svo yfir gegn gangi leiksins en Oscar Cardozo jafnaði úr víti. Allt leit út fyrir framlengingu þegar Branislav Ivanovic skoraði sigurmarkið með skalla eftir horn þegar komið var fram í viðbótartíma. Ótrúleg endalok!
Chelsea heldur því báðum Evrópubikurunum á sama tíma og slíkt hefur ekki gerst áður. Evrópubikarinn er enn í vörslu Chelsea frá því í fyrra. Chelsea varð um leið fyrst enskra liða til að vinna allar Evrópukeppnirnar. Evrópubikarinn, Evrópukeppni bikarhafa, Evrópudeildina og Stórbikar Evrópu.


Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

