| Sf. Gutt
Á næstu leiktíð, 1997/98, lék Jamie talsvert og festi sig í sessi í aðalliðinu. Venjulega lét Roy Jamie spila aftarlega á miðjunni. Roy þekkir Jamie frá fystu tíð og hefur fylgst með honum síðan. Hann segir að það verði enginn annar Jamie Carragher!
,,Við þurfum að fá einhvern til að koma í staðinn fyrir Jamie Carragher og Brendan tæpti á því á blaðamannafundinum að hann þyrfti að leita mikið og lengi til að fá einhvern í hans stað. En það er bara ekki hægt að finna einhvern leikmann sem er eins og Jamie. Það verður hægt að finna einhvern öðruvísi leikmann í hans stað en það er ekki til annar Jamie einhvers staðar."
,,Það er hægt að fá einhvern öðruvísi. Miðvörð sem er annarar tegundar og auðvitað þarf annan mann. Það þarf að finna einhvern sem getur spilað með Daniel Agger, Martin Skrtel og hinum. Það eru líka nokkrir ungir strákar hérna sem ætla sér að komast í liðið. Við verðum að fylla skarð Jamie bæði hvað varðar persónuleika hans og hæfileika."
TIL BAKA
Carra kvaddur - Roy Evans

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan