| Sf. Gutt

Búið spil!

Síðasti möguleiki Liverpool á titli í ár fór út í veður og vind í kvöld. Varaliðið féll þá úr leik í undanúrslitum í úrslitakeppni varaliðsdeildarinnar ef svo mætti kalla. Liverpool tapaði 3:0 fyrir Manchester United á Old Trafford.

All gekk vel til að byrja með en tvær vítaspyrnur fór langt með að klára leikinn. Komu þær með stuttu millibili í fyrri hálfleik. Sú fyrri var gjöf en Jon Flanagan fór illa að ráði sínu í þeirri seinni þegar hann stjakaði af óþarfa við leikmanni United. Larnell Cole skoraði úr báðum spyrnunum. Í raun gerðist fátt annað í fyrri hálfleik.

Leikmenn Liverpool reyndu að rétta sinn hlut eftir hlé. Það gekk ekki og Larnell innsiglaði þrennu sína með skoti utan vítateigs þegar um 20 mínútur voru eftir. Allt lagðist svo á eitt þegar Jon var rekinn af velli stuttu síðar eftir að hafa sparkað bolta sakleysislega í liggjandi mótherja. Liverpool er þar með úr leik í þessari keppni en Manchester United mætir Tottenham Hotspur í úrslitaleik. 

Liverpool: Ward, Flanagan, Robinson, Sama, Jones, Coady, Peterson (Dunn), Teixeira, Morgan, Adorjan og Ibe. 

Varaliðið stóð sig í heild vel á leiktíðinni og var taplaust fram að áramótum. Miklar breytingar urðu á liðinu á leiktíðinni og meiðsli lykilmanna komu sér illa undir lokin.

Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.com.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan