| Heimir Eyvindarson
Brendan Rodgers segist hafa lært mikið af sinni fyrstu leiktíð hjá Liverpool. Hann horfir björtum augum til næsta tímabils.
Nú þegar einungis einn leikur er eftir af tímabilinu er ljóst að Liverpool mun enda í 7. sæti Úrvalsdeildarinnar með á bilinu 58-61 stig. Einu sæti ofar en á síðustu leiktíð, en með örlítið fleiri stig í pokahorninu og talsvert fleiri mörk.
„Tímabilið hefur verið mjög lærdómsríkt. Þetta er reynsla sem ég hafði gott af", segir Rodgers í viðtali við Liverpool Echo.
„Þegar ég tók við liðinu renndi ég dálítið blint í sjóinn. Ég vissi kannski ekki mikið annað en að væntingarnar væru miklar hjá félaginu. Ég kem eðlilega mun betur undirbúinn til leiks á næstu leiktíð."
„Við höfum bætt okkur jafnt og þétt í vetur, en við þurfum að gera betur. Staðreyndin er sú að við erum núna 30 stigum á eftir toppliðinu og 11 stigum frá Meistaradeildarsæti. Við þurfum að ná okkur í fleiri stig. Það hlýtur að vera markmiðið fyrir næsta vetur."
Það hafa orðið miklar framfarir hjá liðinu á seinni hluta tímabilsins og ég hef séð nóg til þess að vita að við getum gert mun betur. Sérstaklega ef við vinnum vel í okkar málum í sumar. Vinnum vel í hópnum sem er til staðar og bætum við okkur leikmönnum sem hafa réttu eiginleikana."
„Það þurfa ekki endilega alltaf að vera bestu leikmennirnir. En þeir þurfa að hafa rétta hugarfarið. Eitt af því sem félagið hefur algerlega skort í alltof langan tíma er stöðugleiki. Til þess að ná honum þarf meiri viljastyrk, aukna einbeitingu og almennt kröftugra hugarfar. Meiri sigurvilja."
„Í meira en heilt ár vann félagið aldrei tvo leiki í röð. Snemma á þessu tímabili rufum við þau álög. Það var mikilvægur áfangi. Við höfum tekið lítil, en mikilvæg skref í rétta átt. Það hefur verið frábært að taka þátt í að þoka félaginu fram á við. Á næsta tímabili vil ég taka ennþá stærri skref."
TIL BAKA
Ég hef lært mikið á leiktíðinni
Brendan Rodgers segist hafa lært mikið af sinni fyrstu leiktíð hjá Liverpool. Hann horfir björtum augum til næsta tímabils. Nú þegar einungis einn leikur er eftir af tímabilinu er ljóst að Liverpool mun enda í 7. sæti Úrvalsdeildarinnar með á bilinu 58-61 stig. Einu sæti ofar en á síðustu leiktíð, en með örlítið fleiri stig í pokahorninu og talsvert fleiri mörk.
„Tímabilið hefur verið mjög lærdómsríkt. Þetta er reynsla sem ég hafði gott af", segir Rodgers í viðtali við Liverpool Echo.
„Þegar ég tók við liðinu renndi ég dálítið blint í sjóinn. Ég vissi kannski ekki mikið annað en að væntingarnar væru miklar hjá félaginu. Ég kem eðlilega mun betur undirbúinn til leiks á næstu leiktíð."
„Við höfum bætt okkur jafnt og þétt í vetur, en við þurfum að gera betur. Staðreyndin er sú að við erum núna 30 stigum á eftir toppliðinu og 11 stigum frá Meistaradeildarsæti. Við þurfum að ná okkur í fleiri stig. Það hlýtur að vera markmiðið fyrir næsta vetur."
Það hafa orðið miklar framfarir hjá liðinu á seinni hluta tímabilsins og ég hef séð nóg til þess að vita að við getum gert mun betur. Sérstaklega ef við vinnum vel í okkar málum í sumar. Vinnum vel í hópnum sem er til staðar og bætum við okkur leikmönnum sem hafa réttu eiginleikana."
„Það þurfa ekki endilega alltaf að vera bestu leikmennirnir. En þeir þurfa að hafa rétta hugarfarið. Eitt af því sem félagið hefur algerlega skort í alltof langan tíma er stöðugleiki. Til þess að ná honum þarf meiri viljastyrk, aukna einbeitingu og almennt kröftugra hugarfar. Meiri sigurvilja."
„Í meira en heilt ár vann félagið aldrei tvo leiki í röð. Snemma á þessu tímabili rufum við þau álög. Það var mikilvægur áfangi. Við höfum tekið lítil, en mikilvæg skref í rétta átt. Það hefur verið frábært að taka þátt í að þoka félaginu fram á við. Á næsta tímabili vil ég taka ennþá stærri skref."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

