| Sf. Gutt

Það var fyrir einu ári!

Það var fyrir einu ári að Kenny Dalglish stjórnaði Liverpool í síðasta sinn og Brendan Rodgers Swansea City sömuleiðis í síðasta skipti. Síðasta umferðin í ensku knattspyrnunni fór fram og Liverpool mætti Swansea í Wales. Eins og svo oft á síðasta keppnistímabili þá lék Liverpool býsna vel, fékk góð færi en ekkert gekk og það voru svo mótherjarnir sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Swansea vann 1:0 með marki Danny Graham undir lok leiksins. Brenden Rodgers stjórnaði Swansea City og Kenny Dalglish Liverpool. Hvorugur átti eftir að stjórna þessum liðum aftur. Það sem meira var Brendan var hálfum mánuði seinna orðinn framkvæmdastjóri Liverpool!

Nú ári seinna er Swansea Deildarbikarmeistari eftir að hafa tekið við þeim titli af Liverpool. Ein umferð er eftir af ensku deildinni. Brendan Rodgers hefur gengið upp og ofan á sinni fyrstu leiktíð hjá Liverpool en margt bendir til þess að hann sé búinn að ná tökum á liðinu sínu. Liverpool er með fleiri stig en á síðustu leiktíð, hefur skorað fleiri mörk og verður einu sæti ofar í deildinni. Ekkert Evrópusæti verður þó í boði eins og eftir Deildarbikarsigur Kóngsins á síðustu leiktíð. Já, það getur margt gerst á einu ári.

    
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan