| Sf. Gutt

Daniel vill fá landa sinn til Liverpool

Daniel Agger vill fá landa sinn Christian Eriksen til Liverpool. Mikið er nú fjallað um hvert hinn efnilegi miðjumaður muni halda en hann hefur síðustu árin leikið með Ajax. Daniel telur að Christian myndi falla vel að þeirri knattspyrnu sem Liverpool spilar.

,,Við viljum spila sóknarknattspyrnu og halda boltanum á jörðinni og Chrstian Eriksen er góður í því. Hann er leikmaður eins og við þurfum."
 
Daniel var spurður hvort hann teldi að Christian geti staðið sig í ensku knattspyrnunni.

,,Það veltur allt á því fyrir hvaða lið hans spilar. Ef hann spilar með liði sem vill halda boltanum á jörðinni þá er svarið já því að hann spilar boltanum vel, tekur góð hlaup fram völlinn og er duglegur. Hann verður að gera það sem hann telur best og hann ætti að ákveða framtíð sína sjálfur. Þú átt aldrei að hlusta á annan en sjálfan þig."
 
Þetta eru áhugaverð orð hjá Daniel Agger og það verður athyglisvert að sjá hvert Christian Eriksen fer þegar hann yfirgefur Ajax eins og reiknað er með í sumar.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan