| Sf. Gutt

Elda og skipta um dekk

Almennilegt uppeldi! Jú, uppeldi ungliða Liverpool snýst ekki bara um knattspyrnu. Markmiðið er að gera strákana góða og gilda þjóðfélagsþegna. En það er líka aldeilis vel þegið að strákarnir verði frábærir knattspyrnumenn og vinni titla með Liverpool. Norður Írinn Ryan McLaughlin segir hér frá þeirri menntun sem ungliðar Liverpool fá. 
 
,,Framkvæmdastjórinn hefur gert okkur grein fyrir því að lífið snýst ekki um bíla og peninga. Það snýst um að fara út á völlinn, spila fyrir 40.000 áhorfendur, vinna leiki og titla. Þetta er okkur kennt á hverjum degi. Það er líka full þörf á því. Maður veit til þess að menn fari út af sporinu og hafi meiri áhuga á samkvæmislífinu. En okkur er kennt að vera auðmjúkir og halda okkur frá því sem ber að varast."

,,Við eigum að vera þakklátir fyrir hversu lánsamir við erum og það viðhorf ætti að kenna okkur auðmýkt. Í þessari viku heimsækjum við Alder Hey barnaspítalann og hjálpum til í athvarfi fyrir heimilislausa. Félagið hefur alltaf lagt áherslu á að við tökum þátt í svona starfi."

,,Það er líka lögð áhersla á ýmiskonar lífsleikni. Við fáum kennslu í heimilisfræði, lærum að elda, svo við getum séð um okkur. Svo er okkur kennt að skipta um dekk þegar það er sprungið. Þetta er bara fræðsla um hversdagslega hluti sem allir þurfa að geta gert."

,,Við gerum okkur alveg grein fyrir því að við höfum fengið stórkostlegt tækifæri hérna. En við höfum ekkert afrekað ennþá. Sumir hafa, í gegnum tíðina, fengið sama tækifæri og við en hættu alveg í knattspyrnu á unga aldri. Heimamennirnir - The Scousers - þekkja betur til þeirra leikmanna sem eru af sama uppruna og þeir og hafa komist í aðalliðið. Þess vegna eru kannski gerðar meiri kröfur til þeirra en við getum fengið hvatningu úr þeirri staðreynd að Gerrard og Carragher fóru þá sömu leið og við erum að fara núna. Þar af leiðandi vitum við hvað er mögulegt að afreka ef við leggjum allt í sölurnar til að ná markmiðum okkar."

Ryan McLaughlin þykir með efnilegri varnarmönnum Liverpool. Hann leikur jafnan sem hægri bakvörður og hefur verið með betri leikmönnum varaliðsins í vetur. Hann hefur tvívegis verið valinn í aðallandslið Norður Írlands en varð í bæði skiptin að draga sig út úr landsliðinu vegna meiðsla. Það gengur bara betur næst!


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan