| Grétar Magnússon

Daniel Pacheco lánaður

Spánverjinn Daniel Pacheco hefur verið lánaður til spænska 1. deildarliðsins Sociedad Deportiva Huesca til loka tímabilsins. Daniel, sem er 22 ára var á láni hjá Rayo Vallecano tímabilið 2011-12 og þar áður var hann lánaður til Norwich City sem spiluðu þá í næst efstu deild Englands.


Hann hefur spilað alls 17 leiki fyrir aðallið félagsins síðan hann kom árið 2007 frá Barcelona.  Óhætt er að segja að hann hafi ekki orðið sá leikmaður sem margir bjuggust við að hann yrði.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan