| Sf. Gutt
TIL BAKA
Setur Daniel Sturridge félagsmet?
Setur Daniel Sturridge félagsmet á sunnudaginn þegar Liverpool mætir Oldham Athletic í F.A. bikarnum? Hann er búinn að skora í þremur fyrstu leikjum sínum með Liverpool og það hafa sjö leikmenn áður afrekað í sögu Liverpool. Síðastur til að skora í fyrstu þremur leikjum sínum með Liverpool var Ray Kennedy í upphafi leiktíðarinnar 1974/75.
Daniel skoraði í fyrsta leik sínum þegar Liverpool vann Mansfield 1:2 í F.A. bikarnum og hann skoraði svo helgina eftir þegar Liverpool tapaði 2:1 á móti Manchester Untied. Hann skoraði svo um síðustu helgi þegar Liverpool vann Norwich 5:0.
Nú er það svo að skori Daniel á móti Oldham verður hann fyrsti leikmaður í sögu Liverpool til að skora í fjórum fyrstu leikjum sínum með Liverpool. Það yrði mikið afrek og um leið nýtt félagsmet í sögu Liverpool. Það verður sannarlega spennandi að sjá hvort Daniel nær að skora í Oldham og koma sér rækilega á spjöld sögunnar!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Goðsagnirnar unnu! -
| Sf. Gutt
Enn fjölgar á Anfield! -
| Sf. Gutt
Góðverk fyrir góðan gest -
| Sf. Gutt
Goðsagnaleikur í uppsiglingu -
| Sf. Gutt
Joe Gomez í landsliðið á nýjan leik -
| Sf. Gutt
Tveir eftir heima -
| Sf. Gutt
Leggjum allt í sölurnar til loka! -
| Sf. Gutt
Sár endir á FA bikarvegferðinni -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar!
Fréttageymslan