| Grétar Magnússon

Breytingar á þremur leikjum

Leikjum liðsins gegn Blackburn, Norwich og WBA í apríl hefur verið breytt.

Fyrst ber að nefna útileik við Blackburn Rovers sem hefur verið fluttur frá mánudeginum 9. apríl yfir til þriðjudagsins 10. apríl og verður flautað til leiks kl. 19:00 að íslenskum tíma.

Roy Hodgson og hans menn koma í heimsókn á Anfield sunnudaginn 22. apríl en leikurinn var settur á þann daginn áður.  Hefjast leikar kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Að lokum er það útileikur við nýliða Norwich, sá leikur fer fram laugardaginn 28. apríl en verður síðasti leikur þess dags og flautað til leiks kl. 16:30 að íslenskum tíma.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Charlie Adam skora úr vítaspyrnu gegn WBA fyrr á leiktíðinni þegar Liverpool vann 0:2.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan