| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Á dögunum könnuðum við hvaða leikmaður ykkur, lesendum Liverpool.is, þótti standa sig best í janúar. Ekkert breyttist í þremur efstu sætum frá síðasta mánuði og verður það að teljast stórmerkilegt!

Craig Bellamy varð efstur í kjörinu eins og í desember. Veilsverjinn magnaði fór á kostum í fyrsta mánuði ársins. Hann skoraði fjögur mörk og átti þátt í nokkrum. Hann var besti maður vallarins í F.A. bikarleiknum gegn Oldham og skoraði kostulegt mark með maganum. Craig sló þó allt út í seinni undanúrslitaleik Liverpool og Manchester City á Anfield Road. Hann jafnaði leikinn 2:2 og markið hans kom Rauða hernum á Wembley. Menn áttu varla orð til að lýsa framgöngu hans á rafmögnuðu kvöldi og það er ekkert ýkt þegar sagt er að hann hafi átt stórfenglegan leik!  

Næstir komu miðverðirnir tveir sem hafa verið frábærir frá því þeir hófu að leika saman í haust. Daninn Daniel Agger varð annar en hann stóð sig vel í janúar og fiskaði tvær vítaspyrnur í undanúrslitarimmunni í Deildarbikarnum á móti Manchester City. Slóvakinn Martin Skrtel var honum skammt að baki og má svo sem segja að erfitt sé að segja hvor hafi verið betri.





Craig Bellamy 68%

Daniel Agger 13%

Martin Skrtel 10%

Andy Carroll 5%

Steven Gerrard 3%

Einhver annar 1% 

Greidd og gild atkvæði voru 626.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan