| Sf. Gutt
Á sunnudaginn kemur mætir Liverpool Cardiff City í úrslitaleik Deildarbikarins á Wembley í London, höfuðborg Englands. Í fyrsta sinn mætir Liverpool á nýja Wembley leikvanginn en hann var tekinn í notkun árið 2007. Sá gamli var nefndur Syðri Anfield meðal stuðningsmanna Liverpool enda voru gerðar tíðar ferðir þangað um langt árabil.
Það hefur gengið á ýmsu á þessari sparktíð hjá Liverpool. En nú er tækifæri til að bæta við afrekaskrá félagsins og auka sjálfstraust og stemmningu innan vallar sem utan. Það er því mikil spenna í loftinu í Liverpool og hjá stuðningsmönnum liðsins okkar hvar sem þeir eru til sjós og lands.
Til að magna spennuna, hefst í dag, niðurtalning fyrir úrslitaleikinn á liverpool.is. Í niðurtalningunni verður margt til fróðleiks um keppnina og árangur Liverpool í henni svo eitthvað sé nefnt.
+ Deildarbikarinn fór af stað leiktíðina 1960-61. Þáverandi ritari enska knattspyrnusambandsins Alan Hardaker var hugmyndasmiðurinn að keppninni.
+ Þetta er eina keppnin sem öll 92 deildarliðin í ensku atvinnumannadeildunum fjórum hafa eingöngu aðgang að. Utandeildarlið hafa ekki þátttökurétt eins og í F.A. bikarnum.
+ Sigurvegarinn í Deildarbikarnum vinnur sér inn sæti í Evrópudeildinni.
+ Úrslitaleikurinn á sunnudaginn verður sá fimmtugasti og fyrsti í röðinni.
+ Eftirtalin lið hafa unnið Deildarbikarinn frá upphafi keppninnar.
7 sinnum: Liverpool!
5 sinnum: Aston Villa.
4 sinnum: Chelsea, Manchester United, Nottingham Forest og Tottenham Hotspur.
3 sinnum: Leicester City.
2 sinnum: Arsenal, Birmingham City, Manchester City, Norwich City og Wolverhampton Wanderes.
1 sinni: Blackburn Rovers, Leeds United, Luton Town, Middlesborough, Oxford United, Q.P.R, Sheffield Wednesday, Stoke City, Swindon Town og W.B.A.
+ Fyrsti leikur Liverpool í keppninni var 19. október 1960. Liverpool gerði þá 1:1 jafntefli við Luton Town á Anfield Road. Tom Leishman skoraði fyrsta mark Liverpool í keppninni. Liverpool vann seinni leikinn 5:2 í Luton. Kevin Lewis 2, Roger Hunt 2 og Dave Hickson skoruðu mörkin.
+ Liverpool keppti ekki í Deildarbikarnum aftur fyrr en leiktíðina 1967/68. Þá var farið að leika til úrslita á Wembley og varð það til þess að meiri áhugi skapaðist fyrir keppninni. Áður hafði verið leikið til úrslita með því að leika tvo leiki heima og að heiman.
TIL BAKA
Niðurtalningin er hafin - 1. kapítuli
Á sunnudaginn kemur mætir Liverpool Cardiff City í úrslitaleik Deildarbikarins á Wembley í London, höfuðborg Englands. Í fyrsta sinn mætir Liverpool á nýja Wembley leikvanginn en hann var tekinn í notkun árið 2007. Sá gamli var nefndur Syðri Anfield meðal stuðningsmanna Liverpool enda voru gerðar tíðar ferðir þangað um langt árabil. Það hefur gengið á ýmsu á þessari sparktíð hjá Liverpool. En nú er tækifæri til að bæta við afrekaskrá félagsins og auka sjálfstraust og stemmningu innan vallar sem utan. Það er því mikil spenna í loftinu í Liverpool og hjá stuðningsmönnum liðsins okkar hvar sem þeir eru til sjós og lands.
Til að magna spennuna, hefst í dag, niðurtalning fyrir úrslitaleikinn á liverpool.is. Í niðurtalningunni verður margt til fróðleiks um keppnina og árangur Liverpool í henni svo eitthvað sé nefnt.
+ Deildarbikarinn fór af stað leiktíðina 1960-61. Þáverandi ritari enska knattspyrnusambandsins Alan Hardaker var hugmyndasmiðurinn að keppninni.
+ Þetta er eina keppnin sem öll 92 deildarliðin í ensku atvinnumannadeildunum fjórum hafa eingöngu aðgang að. Utandeildarlið hafa ekki þátttökurétt eins og í F.A. bikarnum.
+ Sigurvegarinn í Deildarbikarnum vinnur sér inn sæti í Evrópudeildinni.
+ Úrslitaleikurinn á sunnudaginn verður sá fimmtugasti og fyrsti í röðinni.
+ Eftirtalin lið hafa unnið Deildarbikarinn frá upphafi keppninnar.
7 sinnum: Liverpool!
5 sinnum: Aston Villa.
4 sinnum: Chelsea, Manchester United, Nottingham Forest og Tottenham Hotspur.
3 sinnum: Leicester City.
2 sinnum: Arsenal, Birmingham City, Manchester City, Norwich City og Wolverhampton Wanderes.
1 sinni: Blackburn Rovers, Leeds United, Luton Town, Middlesborough, Oxford United, Q.P.R, Sheffield Wednesday, Stoke City, Swindon Town og W.B.A.
+ Fyrsti leikur Liverpool í keppninni var 19. október 1960. Liverpool gerði þá 1:1 jafntefli við Luton Town á Anfield Road. Tom Leishman skoraði fyrsta mark Liverpool í keppninni. Liverpool vann seinni leikinn 5:2 í Luton. Kevin Lewis 2, Roger Hunt 2 og Dave Hickson skoruðu mörkin.
+ Liverpool keppti ekki í Deildarbikarnum aftur fyrr en leiktíðina 1967/68. Þá var farið að leika til úrslita á Wembley og varð það til þess að meiri áhugi skapaðist fyrir keppninni. Áður hafði verið leikið til úrslita með því að leika tvo leiki heima og að heiman.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

