| Sf. Gutt
Ekki verður annað sagt en að Luis Suarez hafi stuðning á æðstu stöðum í sínum málum. Jose Mujica, forseti Úrúgvæ, hefur nú sagt sitt.
,,Hér er samstaða með Suarez. Suarez er ekki og verður aldrei haldinn neinum kynþáttafordómum."
Hermt er að Luis Suarez hafi verið sýndur mikill stuðningur í heimalandi sínu og þar í landi furðar fólk sig á því að Luis hafi verið sakaður um kynþáttafordóma á Englandi. Diego Lugano, fyrirliði landsliðs Úrúgvæ, hefur lagt orð í bleg varðandi mál félaga síns.
,,Við skulum hafa í huga að England er sögulega tengt nýlendumálum og þess vegna eru kynþáttafordómar viðkvæmt mál en þeir komu samskiptum Luis og leikmanns United ekkert við. Luis er nú búinn að eiga erfitt í nokkra mánuði að ósekju. Allir í knattspyrnuheiminum vita að þetta er allt stór sirkus. Luis þurfti að vera hugrakkur til að taka þá ákvörðun sem hann tók á laugardaginn. Hann fylgdi sannfæringu sinni. Við búum í lýðræðisríki og ef maður vill ekki taka í höndina á einhverjum þá hefur maður fullan rétt á því."
Svo mörg voru þau orð og sitt sýnist hverjum.
TIL BAKA
Stuðningur á æðstu stöðum!
Ekki verður annað sagt en að Luis Suarez hafi stuðning á æðstu stöðum í sínum málum. Jose Mujica, forseti Úrúgvæ, hefur nú sagt sitt. ,,Hér er samstaða með Suarez. Suarez er ekki og verður aldrei haldinn neinum kynþáttafordómum."
Hermt er að Luis Suarez hafi verið sýndur mikill stuðningur í heimalandi sínu og þar í landi furðar fólk sig á því að Luis hafi verið sakaður um kynþáttafordóma á Englandi. Diego Lugano, fyrirliði landsliðs Úrúgvæ, hefur lagt orð í bleg varðandi mál félaga síns.
,,Við skulum hafa í huga að England er sögulega tengt nýlendumálum og þess vegna eru kynþáttafordómar viðkvæmt mál en þeir komu samskiptum Luis og leikmanns United ekkert við. Luis er nú búinn að eiga erfitt í nokkra mánuði að ósekju. Allir í knattspyrnuheiminum vita að þetta er allt stór sirkus. Luis þurfti að vera hugrakkur til að taka þá ákvörðun sem hann tók á laugardaginn. Hann fylgdi sannfæringu sinni. Við búum í lýðræðisríki og ef maður vill ekki taka í höndina á einhverjum þá hefur maður fullan rétt á því."
Svo mörg voru þau orð og sitt sýnist hverjum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

