Í minningu Bob Paisley

Í dag eru sextán ár liðin frá því meistarinn Bob Paisley yfirgaf þetta jarðlíf. Bob er sigursælasti framkvæmdastjóri í sögu Liverpool. Ekki er nóg með það því það stenst enginn Breti samanburð við hann. Hver annar hefur til dæmis unnið þrjá Evrópubikara? Svar: Enginn! Enn þann dag í dag furða stuðningsmenn Liverpool og margir aðrir áhugamenn um ensku knattspyrnuna sig á því að Bob skyldi aldrei vera aðlaður. Sagan sýnir að það hefur stundum verið hlaupið upp til handa og fóta og heiðursmerkjum hlaðið á menn sem minna hafa lagt af mörkum. En við stuðningsmenn Liverpool metum Bob og afrek hans að verðleikum og það er það sem máli skiptir.
Ferill hans hjá Liverpool verður aldrei viðjafnaður. Hann var starfsmaður Liverpool frá 1939 og næstu hálfa öldina. Fyrst sem leikmaður, þá þjálfari, sjúkraþjálfari, aðstoðarframkvæmdastjóri, framkvæmdastjóri og loks sem stjórnarmaður. Ferill hans er einstakur hvernig sem á hann er litið. Greinargóðar lýsingar á ferli hans er að finna á vefsíðunum Bobpaisley.com og LFChistory.net.
Fæddur: 23. janúar 1919.
Dáinn: 14. febrúar 1996.
Leikmaður Liverpool 1939 til 1954
Leikir með Liverpool: 277.
Mörk með Liverpool: 12.
Bob varð enskur meistari með Liverpool leiktíðina 1946/47.
Framkvæmdastjóri Liverpool 1975 til 1983
Afrek sem framkvæmdastjóri
Englandsmeistari: 1975/76, 1976/77, 1978/79, 1979/80, 1981/82 og 1982/83.
Deildarbikarmeistari: 1980/81, 1981/82 og 1982/83.
Góðgerðarskjöldurinn: 1976, 1977 (deilt), 1979, 1980 og 1982.
Evrópukeppni meistaraliða: 1976/77, 1977/78 og 1980/81.
Evrópukeppni félagsliða: 1975/76.
Stórbikar Evrópu: 1977.
Framkvæmdastjóri ársins: 1976, 1977, 1979, 1980, 1982 og 1983.
Framkvæmdastjóri mánaðarins: Fjórtán sinnum.
Það mætti líka telja Góðgerðarskjöldinn árið 1974 með á afrekalistanum. Bob var orðinn framkvæmdastjóri þegar Skjöldurinn vannst en Bill Shankly, sem hætti sem framkvæmdastjóri um sumarið, leiddi Liverpool til leiks og því vildi Bob að Bill fengi heiðurinn af þeim sigri! Það er lítið dæmi um hógværð mannsins. Bob var Kenny Dalglish til ráðgjafar þegar Kenny tók við framkvæmdastjórn sumarið 1985. Kenny stýrði Liverpool til sigurs í deild og bikar á sinni fyrstu leiktíð 1985/86. Bob átti sinn þátt í því afreki þótt það sé ekki á afrekaskrá hans. Bob endaði starfsferil sinn hjá Liverpool með því að sitja í stjórn félagsins frá 1983 til 1992.

Grafskrift Bob Paisley
,,Hógvær maður sem vann ótrúleg afrek."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

