| Sf. Gutt
Það er alltaf nóg af mörkum þegar varalið Liverpool spilar. Þetta brást ekki í dag þegar liðið heimsótti Sunderland. Svörtu kettirnir leiða norðurriðil varaliðsdeildarinnar og höfðu fyrir þennan leik unnið alla heimaleiki sína. Sigurgangan endaði í dag þegar 3:3 jafntefli varð staðreynd.
Liverpool komst yfir þegar bakvörðurinn Jon Flanagan skoraði af stuttu færi. Suso átti þá skot í stöng og Jon fylgdi á eftir. Heimamenn voru ekki ánægðir með þetta og svöruðu með þremur mörkum. Þeir komust á bragðið með ódýrri vítaspyrnu og svo komu tvö önnur mörk og staðan 3:1 í hálfleik.
Piltar Rodolfo Borrell lögðu þó ekki árar í bát og Conor Coady lagaði stöðuna með skalla eftir horn. Ungverjinn Krisztian Adorjan jafnaði svo leikinn þegar fyrirgjöf hans frá vinstri sveif undan vindi í markið. Staðan orðin 3:3 og litlu munaði að Liverpool næði sigri þegar Suso lék á tvo leikmenn og átti svo þrumuskot utan vítateigs sem small í þverslá.
Góð úrslit þegar upp var staðið því sem fyrr segir hafði Sunderland unnið alla heimaleiki sína á leiktíðinni og Liverpool náði að vinna upp tveggja marka forskot.
Liverpool: Belford, Flanagan, Robinson, Sama, Wisdom, Coady, Suso, Roberts, Eccleston, Adorjan og Sterling. Varamenn: Mendy, Ward, McGiveron, Roddan og Ngoo.
TIL BAKA
Jafntefli varaliðsins
Það er alltaf nóg af mörkum þegar varalið Liverpool spilar. Þetta brást ekki í dag þegar liðið heimsótti Sunderland. Svörtu kettirnir leiða norðurriðil varaliðsdeildarinnar og höfðu fyrir þennan leik unnið alla heimaleiki sína. Sigurgangan endaði í dag þegar 3:3 jafntefli varð staðreynd.Liverpool komst yfir þegar bakvörðurinn Jon Flanagan skoraði af stuttu færi. Suso átti þá skot í stöng og Jon fylgdi á eftir. Heimamenn voru ekki ánægðir með þetta og svöruðu með þremur mörkum. Þeir komust á bragðið með ódýrri vítaspyrnu og svo komu tvö önnur mörk og staðan 3:1 í hálfleik.
Piltar Rodolfo Borrell lögðu þó ekki árar í bát og Conor Coady lagaði stöðuna með skalla eftir horn. Ungverjinn Krisztian Adorjan jafnaði svo leikinn þegar fyrirgjöf hans frá vinstri sveif undan vindi í markið. Staðan orðin 3:3 og litlu munaði að Liverpool næði sigri þegar Suso lék á tvo leikmenn og átti svo þrumuskot utan vítateigs sem small í þverslá.
Góð úrslit þegar upp var staðið því sem fyrr segir hafði Sunderland unnið alla heimaleiki sína á leiktíðinni og Liverpool náði að vinna upp tveggja marka forskot.
Liverpool: Belford, Flanagan, Robinson, Sama, Wisdom, Coady, Suso, Roberts, Eccleston, Adorjan og Sterling. Varamenn: Mendy, Ward, McGiveron, Roddan og Ngoo.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

