| Sf. Gutt
John Barnes, fyrrum leikmaður Liverpool, mátti þola ýmsilegt hvað tengdist kynþáttaníði á ferli sínum. Bananar flugu úr áhorfendastæðum í átt til hans þó aðeins eitt sé nefnt. Hann er ekki sammála Alan Hansen, fyrrum félaga sínum hjá Liverpool, í stóra handabandsmálinu og telur handaband, Luis Suarez og Patrice Evra, ekki hafa verið nauðsynlegt!
John telur líka ábyrgð fjölmiðla í öllum þessum atgangi mikla og þeir hafi mikil áhrif á hvernig svona mál þróast. Hann segir líka málið blásið út á Englandi og það hefði ekki vakið svona mikla athygli í öðrum löndum. John hafði meðal annars þetta að segja um málið.
,,Mér er alveg sama hvort einhver tekur í hendina á mér eða ekki. Þessi athöfn skiptir ekki máli. Hún er ekki gerð af neinum innileik og er þýðingarlítil. Mér finnst líka alveg með ólíkindum að þessir leikmenn hafi verið settir í þessa aðstöðu. Menn eru alveg búnir að missa sig út af einhverjum einstökum atvikum en séu þeir settir í stærra samhengi skipta þeir ekki miklu máli. Knattspyrnufélög þurfa svo að bregðast við hinu og þessu vegna þess sem við gerðum í fjölmiðlum."
,,Við höfum í þessu tilfelli gert úlfalda úr mýflugu. Við erum ekki varðmenn fyrir siðferði í heiminum. Við höldum að við séum það en staðreyndin er önnur. Það eru verri atburðir að gerast í heiminum. Það eru verri hlutir að gerast í þessu landi. Það á ekki allt að snúast um hvað gerist í knattspyrnuheiminum."
John Barnes ítrekaði síðar í máli sínu að Luis Suarez hefði haft fullan rétt á því að vilja ekki taka í hönd Patrice Evra. Hann segir að hann hefði átt að greina forráðamönnum Liverpool frá þessu svo hægt hefði verið að gera ráðstafanir til að ekki illa færi. Hann sagði svo að Patrice Evra hefði sýnt miður góða hegðun þegar hann fagnaði með miklum látum fyrir framan Luis Suarez í leikslok.
Sjónarmið John Barnes í þessu máli eru góð og gild eins og svo mörg önnur. Hann talaði um nornaveiðar gagnvart Luis fyrir nokkrum vikum og þau orð líkt og þessi hér að ofan eru merkileg í því samhengi að John er jú dökkur á hörund og mátti þola kynþáttníð á ferli sínum.
Meðfylgjandi er fræg mynd af John Barnes en á henni sparkar hann banana, sem hent var í átt að honum, af velli með hnitmiðaðri hælspyrnu. Myndin var tekin árið 1988 á Goodison Park heimavelli Everton.
TIL BAKA
Handaband engin nauðsyn!
John Barnes, fyrrum leikmaður Liverpool, mátti þola ýmsilegt hvað tengdist kynþáttaníði á ferli sínum. Bananar flugu úr áhorfendastæðum í átt til hans þó aðeins eitt sé nefnt. Hann er ekki sammála Alan Hansen, fyrrum félaga sínum hjá Liverpool, í stóra handabandsmálinu og telur handaband, Luis Suarez og Patrice Evra, ekki hafa verið nauðsynlegt!John telur líka ábyrgð fjölmiðla í öllum þessum atgangi mikla og þeir hafi mikil áhrif á hvernig svona mál þróast. Hann segir líka málið blásið út á Englandi og það hefði ekki vakið svona mikla athygli í öðrum löndum. John hafði meðal annars þetta að segja um málið.
,,Mér er alveg sama hvort einhver tekur í hendina á mér eða ekki. Þessi athöfn skiptir ekki máli. Hún er ekki gerð af neinum innileik og er þýðingarlítil. Mér finnst líka alveg með ólíkindum að þessir leikmenn hafi verið settir í þessa aðstöðu. Menn eru alveg búnir að missa sig út af einhverjum einstökum atvikum en séu þeir settir í stærra samhengi skipta þeir ekki miklu máli. Knattspyrnufélög þurfa svo að bregðast við hinu og þessu vegna þess sem við gerðum í fjölmiðlum."
,,Við höfum í þessu tilfelli gert úlfalda úr mýflugu. Við erum ekki varðmenn fyrir siðferði í heiminum. Við höldum að við séum það en staðreyndin er önnur. Það eru verri atburðir að gerast í heiminum. Það eru verri hlutir að gerast í þessu landi. Það á ekki allt að snúast um hvað gerist í knattspyrnuheiminum."
John Barnes ítrekaði síðar í máli sínu að Luis Suarez hefði haft fullan rétt á því að vilja ekki taka í hönd Patrice Evra. Hann segir að hann hefði átt að greina forráðamönnum Liverpool frá þessu svo hægt hefði verið að gera ráðstafanir til að ekki illa færi. Hann sagði svo að Patrice Evra hefði sýnt miður góða hegðun þegar hann fagnaði með miklum látum fyrir framan Luis Suarez í leikslok. Sjónarmið John Barnes í þessu máli eru góð og gild eins og svo mörg önnur. Hann talaði um nornaveiðar gagnvart Luis fyrir nokkrum vikum og þau orð líkt og þessi hér að ofan eru merkileg í því samhengi að John er jú dökkur á hörund og mátti þola kynþáttníð á ferli sínum.
Meðfylgjandi er fræg mynd af John Barnes en á henni sparkar hann banana, sem hent var í átt að honum, af velli með hnitmiðaðri hælspyrnu. Myndin var tekin árið 1988 á Goodison Park heimavelli Everton.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

