| Sf. Gutt

Varaliðið á skotskónum

Varalið Liverpool var á skotskónum og vann öruggan 4:0 sigur á Norwich City. Leikurinn fór fram á Melwood æfingasvæði Liverpool og Rodolfo Borrell, þjálfari liðsins stillti upp óvenjulega sterku liði og voru sjö aðalliðsmenn í byrjunarliðinu. 

Nathan Eccleston kom Liverpool yfir eftir sjö mínútur. Hann skoraði þá af stuttu færi eftir góða rispu og fyrirgjöf Jon Flanagan. Nathan átti svo skot í þverslá og niður áður en hann skoraði í annan gang þegar sex mínútur voru til leikhlés. Fabio Aurelio tók þá horn. Boltinn hrökk á Nathan sem skoraði örugglega.
 
Raheem Sterling jók forystuna í síðari hálfleik þegar hann komst inn í vítateignn og skoraði. Hann lagði svo upp fjórða markið fyrir Jonjo Shelvey en hann þrumaði boltanum í mark við vítateiginn. Góður sigur og Nathan skorar enn fyrir varaliðið og kannski ætti hann að fá tækifæri með aðalliðinu en þar vantar auðvitað mörk á köflum.

Liverpool: Brad Jones, Jon Flanagan, Jack Robinson, Sebastian Coates, Andre Wisdom, Conor Coady, Raheem Sterling, Jonjo Shelvey, Nathan Eccleston, Krisztian Adorjan og Fabio Aurelio.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan