| Sf. Gutt

Verður Steven fyrirliði landsliðsins?

Það vantar mann til að leiða enska landsliðið eftir að John Terry var sviptur stöðu fyrirliða í gær en hann á málaferli yfir höfði sér vegna meints kynþáttaníðs. Margir telja að Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, taki við fyrirliðabandinu en eins og gefur að skilja þarf nýjan fyrirliða. Mikið var fjallað um tilvonandi fyrirliða í enskum fjölmiðlum í gær og töldu margir að Steven væri best treystandi fyrir því hlutverki.

Enska landsliðið keppir í úrslitakeppni Evrópmóts landsliða sem fer fram í Póllandi og Úkraínu í sumar. Verði Steven heill heilslu er næsta víst að hann verður valinn í enska landsliðið. Hann lék þó ekki einn einasta landsleik á síðasta árið vegna meiðsla og víst styttist í landsliðsferli hans.

Steven Gerrard hefur all oft leitt enska landsliðið í gegnum árin en það verður áhugavert að sjá hvort hann verður gerður formlega að fyrirliða enska landsliðsins. En fyrst og síðast vonum við stuðningsmenn Liverpool að hann leiði liðið okkar sem lengst.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan