| Sf. Gutt

Liverpool úr en samt áfram!

Unglingalið Liverpool féll úr Evrópukeppni unglingaliða á miðvikudagskvöldið en í dag komst liðið samt áfram í keppninni. Liverpool tapaði á miðvikudagskvöldið 1:0 fyrir Tottenham á White Hart Lane. Leikurinn var í átta liða úrslitum svokallaðri NextGen keppni sem er keppni unglingaliða í Evrópu með svipuðu sniði og Meistaradeildin. En í dag kom í ljós að Tottenham tefldi fram ólöglegum leikmanni og Liverpool er það með komið í undanúrslit keppninnar!

Reyndar átti Liverpool varla skilið að tapa á White hart Lane en liðið lék mjög vel og átti mjög mörg góð færi. Liverpool fór í gegnum riðlakeppni í haust og voru úrslitin þau að Liverpool tapaði báðum leikjunum á móti Sporting Lissabon, 0:3 á Anfield og 5:1 í Portúgal. Liverpool vann báða leikina gegn norska liðinu Molde, 3:0 á Anfield og 0:4 í Noregi. Þriðja liðið sem Liverpool lék með í riðli var þýska liðið Wolfsburg. Liðin skildu jöfn 1:1 í Liverpool en þýska liðið vann 2:0 á heimavelli sínum.   

Liverpool fer sem sagt áfram í undanúrslit þar sem liðið mætir annað hvort Ajax eða Barcelona.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan