| Sf. Gutt

Steven ánægður með endurkomu Luis

Steven Gerrard er hinn ánægðasti með að Luis Suarez sé nú laus úr leikbanni sínu og geti farið að spila með Liverpool á nýjan leik. Hann segir að Luis geti ráðið baggamuninn í að Liverpool nái því sem að er stefnt það sem eftir er leiktíðar.

,,Luis getur hjálpað okkur við að ná markmiðum okkar sem er að ná einu af fjórum efstu sætunum í deildinni og komast í tvo úrslitaleiki. Ég er viss um að hann verður frábær." 

,,Luis hefur sýnt síðustu tólf mánuðina að hann er einn besti leikmaður í heimi. Við viljum auðvitað hafa svoleiðis menn til taks. Hann er búinn að vera frá og leikmennirnir hlakka til að bjóða hann velkominn til baka."

Það verður spennandi að sjá hvernig Steven Gerrard og Luis Suarez ná saman. Þeir hafa nefnilega svo til ekkert leikið saman frá því Luis kom til Liverpool. Leikbönn beggja og langvarandi meiðsli Steven hafa séð fyrir því. En nú fá þeir vonandi tækifæri til vors til að herja á andstæðinga Liverpool. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan