| Sf. Gutt

Joao Carlos Teixeira til Liverpool

Portúgalinn Joao Carlos Teixeira hefur gert samning við Liverpool. Hann kemur frá Sporting Lissabon og samkvæmt staðarblaðinu Echo borgaði Liverpool um 850.000 sterlingspund fyrir piltinn sem er nítján ára.

Joao, sem spilar á miðjunni, þykir með efnilegri Portúgölum. Hann mun til að byrja með æfa og spila með unglingaliðinu. Ekki er ólíklegt að hann fái að spreyta sig með varaliðinu ef hann stendur sig vel.

Í þessu sambandi má nefna að ekkert verður af því að Rory Donnelly sem Liverpool var orðað við fyrir jólin komi til félagsins. Hann fór til Swansea City ef rétt er vitað.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan