L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
26.01.2012 06:01
|
HI
Knattspyrnuskóli Liverpool á Íslandi í sumar
Afturelding stendur í sumar fyrir Knattspyrnuskóla Liverpool á Íslandi annað árið í röð. Haldin verða tvö námskeið á Tungubökkum í Mosfellsbæ. Hið fyrra verður dagana 7.-9. júní (fimmtudagur til laugardags) og hið síðara 10.-12. júní (sunnudagur til þriðjudags).
Knattspyrnuskóli Liverpool er fyrir fótboltastráka- og stelpur á aldrinum 6-14 ára (7.- 4. flokkur). Liverpool starfrækir knattspyrnuskóla víða um heim og leggur mikla áherslu á þjálfun barna og unglinga, en barna- og unglingastarf Liverpool hefur alið af sér heimsklassa knattspyrnumenn eins og Steven Gerrard.
Liverpool sendir góðan hóp af þjálfurum sínum til Íslands og lögð er höfuðáhersla á að allir þátttakendur á námskeiðinu verði undir stjórn þjálfara frá Liverpool. Hver þjálfari Liverpool mun stýra hópi með 20 börnum og þeim til aðstoðar verða þjálfarar Aftureldingar, sem munu m.a. sjá um að túlka á íslensku. Sérstakur æfingahópur verður fyrir markmenn.
Aðeins 180 sæti eru í boði á hvort námskeið og þeir sem fyrstir greiða þátttökugjaldið tryggja sér sæti á námskeiðið. Verð er 19.500 kr. Innifalið er morgunhressing og hádegisverður. Greiðsla og skráning fer þannig fram að þátttökugjaldið er millifært á: 549 - 26 - 457 kt. 5201002610 og tölvupóstur svo sendur með staðfestingu greiðslu og upplýsingum um iðkanda (nafn, flokkur, aldur) ásamt nafni og símanúmeri forráðamanns á: afturelding@internet.is. Ef viðkomandi er markvörður er mikilvægt að taka það fram.
Þetta er einstakt tækifæri til að njóta leiðsagnar frá rómuðum unglingaþjálfurum Liverpool FC.
Anthony Godfrey var yfirþjálfari Liverpoolskólans á Íslandi í fyrra og hann var í sjöunda himni með heimsóknina að Tungubökkum.
"Skólinn heppnaðist gríðarlega vel á Íslandi í fyrra og hann fór langt fram úr okkar björtustu vonum. Ég hef tekið þátt í að skipuleggja og þjálfa í ótal fótboltaskólum út um allan heim undanfarin ár en LFC INTERNATIONAL FOOTBALL ACADEMY á Íslandi er einn sá allra besti í Evrópu. Skipulagningin hjá okkar íslensku tengiliðum var framúrskarandi og við Liverpoolþjálfararnir vorum yfir okkur hrifnir af áhuga og dugnaði ungu fótboltakrakkanna. Viðbrögðin sem við fengum frá börnunum og foreldrum þeirra voru líka einstaklega jákvæð. Þjálfararnir skemmtu sér vel og töluðu um að hvergi annars staðar í heiminum hefði þeim gengið betur að koma þekkingu sinni á „The Liverpool Way“ á framfæri og þeir hlakka mikið til að mæta aftur í ár."
Anthony segir að stærsti kosturinn við það að taka þátt í Liverpoolskólanum sé að geta lært af frábærum þjálfurum sem vinna eftir hugtakinu „The Liverpool Way“ sem var kynnt til sögunnar á síðustu öld af fyrsta yfirmanni LFC Academy, Liverpoolgoðsögninni Steve Heighway. Öll þjálfun í Liverpoolskólanum er hönnuð í kringum leikjatengda atburðarás sem þróast eftir því sem á líður námskeiðið en aðalmarkmiðið er samt að hafa æfingarnar skemmtilegar á öllum aldursstigum.
En hvar finnst honum íslenskir fótboltakrakkar standa í samanburði við jafnaldra sína annars staðar í heiminum?
„Krakkarnir á Íslandi hafa flestir góðan grunn. Þeir eru greinilega mjög kappsamir og njóta þess að æfa og spila fótbolta. Þeir eru upp til hópa einstaklega áhugasamir og viljugir að læra meira og flestir eru mjög ákveðnir í því að verða betri leikmenn. Þegar maður hefur úr svona góðum efnivið að spila og jafn áhugasama einstaklinga geta þeir staðist samanburð við þá bestu, hvar sem er í heiminum. Það virðist vera sem grasrótarstarfið á Íslandi sé betra en víðs vegar annars staðar í heiminum og ef vel er haldið á spilunum næstu árin mun það þýða bjarta framtíð fyrir komandi kynslóðir í íslenska fótboltanum."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir