Forsíða

Frétt

31.12.2011 14:12 | Sf. Gutt

Danny Wilson lánaður

Skotinn Danny Wilson hefur verið lánaður frá Liverpool. Hann verður í láni hjá Blackpool fram til vors. Danny fylgir þar með í fótspor Jonjo Shelvey sem var um tíma hjá Blackpool í haust. 

Danny, sem spilar alla jafna sem miðvörður, hefur leikið einn leik með Liverpool það sem af er þessarar leiktíðar. Alls hefur hann spilað níu leiki með Liverpool frá því hann kom frá Rangers í fyrra.







Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin