| Grétar Magnússon

Varaliðið tapaði illa

Varalið Liverpool og varalið Manchester United mættust á heimavelli síðarnefnda liðsins á fimmtudagskvöldið.  Skemmst er frá því að segja að stórt tap var niðurstaðan.

Varaliðið hafði verið að spila vel í síðustu leikjum og mættu menn Rodolfo Borrell því með gott sjálfstraust í leikinn.  En á 25. mínútu, þegar staðan var jöfn, var Suso rekinn af velli með beint rautt spjald eftir að hafa lent saman við Paul Pogba, miðjumann United.  Aðstoðardómarinn mat brot Suso, sem er hér á mynd, þannig að hann hefði verið með takkana of hátt á lofti en rauða spjaldið þótti þó of harður dómur.  Eftir þetta höfðu leikmenn United yfirhöndina.

Leikmenn United stilltu fram sterku liði og innanborðs voru margir þeirra leikmanna sem léku við Crystal Palaca í 8-liða úrslitum Deildarbikarsins á Old Trafford.  Þrátt fyrir yfirhöndina gengu leikmenn til hálfleiks í stöðunni 0-0.

Aðeins tveim mínútum eftir fyrsta flaut síðari hálfleiks skoraði William Keane eftir hornspyrnu.  Jesse Lingard skoraði svo annað mark United á 56. mínútu eftir fyrirgjöf Keane frá hægri, boltinn fór framhjá mörgum leikmönnum Liverpool inní vítateig og Lingard var einn og óvaldaður á fjærstönginni.

Andre Wisdom var svo nálægt því að minnka muninn fyrir Liverpool þegar hann þrumaði boltanum í þverslána, heppnin var ekki með Liverpool í þessum leik.

United menn bættu við tveimur mörkum í viðbót áður en yfir lauk og var þar að verki Mame Biram Diouf af stuttu færi í bæði skiptin.

Borrell, stjóri varaliðsins sagði eftir leik:  ,,Mér fannst við byrja leikinn nokkuð vel en rauða spjaldið gerði okkur erfitt fyrir gegn reynslumiklu liði.  Ég þarf að atvikið með Suso aftur áður en ég segi eitthvað um það vegna þess að ég hef ekki séð þetta almennilega.  Að spila með 10 menn gegn svona liði er ekki auðvelt.  Rauða spjalidð breytti leiknum."

Varaliðið á eftir að leika einn leik á árinu en þeir mæta Fulham á útivelli á þriðjudaginn næsta.

Varalið Liverpool:  Hansen, Flanagan, Wisdom, Sama, Wilson, Coady (Roddan), Suso, Roberts, Eccleston (Silva), Adorjan (Ngoo) og Sterling.  Ónotaðir varamenn:  Belford og Mendy.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan