| Sf. Gutt
Lucas Leiva var borinn af velli á Stamford Bridge í kvöld eftir að hafa orðið fyrir hnémeiðslum. Óvíst er hversu alvarleg meiðslin eru en Lucas virtist töluvert þjáður þegar hann var borinn af velli. Hann og Juan Mata rákust saman og reyndar ætlaði Lucas sér að spila áfram en það gekk ekki.
Kenny Dalglish, framkvæmdastjóri Liverpool, sagði eftir leikinn að óljóst væri hversu alvarleg meiðslin væru en Lucas þyrfti í sneiðmyndatöku. Kenny sagði að Lucas færi í myndatökuna á morgun eða hinn daginn og þá kæmi allt í ljós. Ljóst er að það yrði mikið áfall fyrir Liverpool ef meiðsli Brasilíumannsins væru alvarleg en hann er búinn að vera alveg frábær á þessu keppnistímabili sem og því síðasta.
TIL BAKA
Lucas meiddur
Lucas Leiva var borinn af velli á Stamford Bridge í kvöld eftir að hafa orðið fyrir hnémeiðslum. Óvíst er hversu alvarleg meiðslin eru en Lucas virtist töluvert þjáður þegar hann var borinn af velli. Hann og Juan Mata rákust saman og reyndar ætlaði Lucas sér að spila áfram en það gekk ekki.Kenny Dalglish, framkvæmdastjóri Liverpool, sagði eftir leikinn að óljóst væri hversu alvarleg meiðslin væru en Lucas þyrfti í sneiðmyndatöku. Kenny sagði að Lucas færi í myndatökuna á morgun eða hinn daginn og þá kæmi allt í ljós. Ljóst er að það yrði mikið áfall fyrir Liverpool ef meiðsli Brasilíumannsins væru alvarleg en hann er búinn að vera alveg frábær á þessu keppnistímabili sem og því síðasta.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

