| Sf. Gutt

Martin með magnað mark!

Martin Kelly skoraði magnað mark fyrir enska undir 21. árs liðið sem burstaði Ísland 5:0. Martin lék sem miðvörður en braust fram frá miðju þegar hann skoraði. Hann vann boltann af Guðlaugi Victori Pálssyni, fyrrum félaga sínum í varaliði Liverpool sem nú leikur með Hibernian, ruddist framhjá öðrum landa okkar og þrumaði svo boltanum í markið rétt eftir að hann var kominn inn í vítateiginn.

Mark Martin, sem lék mjög vel, kom enskum í 2:0. Hin mörk enska liðsins skoruðu þeir Marvin Sordell, Craig Dawson og Gary Gardner sem skoraði tvö. Jordan Henderson var fyrirliði enska liðsins og lék mjög vel inni á miðri miðjunni.

Hér má sjá markið hans Martin Kelly sem er hans annað landsliðsmark.

Hér má sjá viðtal við Martin og Marvin Sordell.  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan