| Grétar Magnússon
Vinstri bakvörðurinn Jack Robinson hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við félagið. Hann segist vera hæstánægður með að hafa skrifað undir.
Robinson, sem varð 18 ára í september hefur semsagt fengið þá viðurkenningu frá félaginu með því að vera boðinn langtímasamningur. Robinson spilaði fjóra leiki á síðasta tímabili og þótti standa sig mjög vel.
,,Ég er í skýjunum," sagði hann í viðtali við liverpoolfc.tv. ,,Ég var á leiðinni í hádegismat þegar ég sá Damien (Comolli) á leið þangað. Hann tók mig afsíðis og sagði að félagið vildi bjóða mér nýjan samning. Það var ekki vafi í mínum huga, ég varð bara svo spenntur yfir því að félagið væri að bjóða mér nýjan samning."
,,Ég verð bara að leggja hart að mér á æfingum. Ég get ekki slakað á núna með nýjan samning uppá vasann. Ég verð að halda áfram að bæta mig og sýna fólki hvað ég get."
Robinson gekk til liðs við U10 ára lið félagsins á sínum tíma og er hann yngsti leikmaður þess í úrvalsdeildinni þegar hann kom inná sem varamaður gegn Hull á lokadegi 2009-10 tímabilsins. Hinir fjórir leikirnir hans með aðalliðinu hafa komið undir stjórn Kenny Dalglish og er þar skemmst að minnast góðri frammistöðu hans gegn Arsenal síðasta vor þegar hann kom inná sem varamaður og hélt Theo Walcott alveg niðri
Áður en hann kom inná fékk hann hughreystandi orð í eyra frá Dalglish.
Robinson útskýrir: ,,Ég var svo stressaður, en áður en ég fór inná kom Kenny og sagði mér lítinn brandara og ég slakaði á. Ég var svo nokkuð góður bara á vellinum eftir það. Þetta var góð áskorun að mæta Theo, og sem betur fer átti ég góðan leik."
Samkeppni um vinstri bakvarðastöðuna er hörð og ekki varð hún léttari eftir að félagið keypti Jose Enrique í sumar og Spánverjinn hefur spilað vel það sem af er.
,,Hann hefur verið stórkostlegur í hverjum einasta leik," sagði Robinson. ,,Ég þarf að læra af honum. Hann er fullkomin fyrirmynd vegna þess að hann er hinn fullkomni vinstri bakvörður."
TIL BAKA
Jack skrifar undir nýjan samning
Vinstri bakvörðurinn Jack Robinson hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við félagið. Hann segist vera hæstánægður með að hafa skrifað undir.Robinson, sem varð 18 ára í september hefur semsagt fengið þá viðurkenningu frá félaginu með því að vera boðinn langtímasamningur. Robinson spilaði fjóra leiki á síðasta tímabili og þótti standa sig mjög vel.
,,Ég er í skýjunum," sagði hann í viðtali við liverpoolfc.tv. ,,Ég var á leiðinni í hádegismat þegar ég sá Damien (Comolli) á leið þangað. Hann tók mig afsíðis og sagði að félagið vildi bjóða mér nýjan samning. Það var ekki vafi í mínum huga, ég varð bara svo spenntur yfir því að félagið væri að bjóða mér nýjan samning."
,,Ég verð bara að leggja hart að mér á æfingum. Ég get ekki slakað á núna með nýjan samning uppá vasann. Ég verð að halda áfram að bæta mig og sýna fólki hvað ég get."
Robinson gekk til liðs við U10 ára lið félagsins á sínum tíma og er hann yngsti leikmaður þess í úrvalsdeildinni þegar hann kom inná sem varamaður gegn Hull á lokadegi 2009-10 tímabilsins. Hinir fjórir leikirnir hans með aðalliðinu hafa komið undir stjórn Kenny Dalglish og er þar skemmst að minnast góðri frammistöðu hans gegn Arsenal síðasta vor þegar hann kom inná sem varamaður og hélt Theo Walcott alveg niðri
Áður en hann kom inná fékk hann hughreystandi orð í eyra frá Dalglish.
Robinson útskýrir: ,,Ég var svo stressaður, en áður en ég fór inná kom Kenny og sagði mér lítinn brandara og ég slakaði á. Ég var svo nokkuð góður bara á vellinum eftir það. Þetta var góð áskorun að mæta Theo, og sem betur fer átti ég góðan leik."
Samkeppni um vinstri bakvarðastöðuna er hörð og ekki varð hún léttari eftir að félagið keypti Jose Enrique í sumar og Spánverjinn hefur spilað vel það sem af er.
,,Hann hefur verið stórkostlegur í hverjum einasta leik," sagði Robinson. ,,Ég þarf að læra af honum. Hann er fullkomin fyrirmynd vegna þess að hann er hinn fullkomni vinstri bakvörður."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

