| Sf. Gutt
Brasilíumaðurinn Lucas Leiva verður fjarri góðu gamni á morgun þegar Liverpool mætir Norwich City. Hann tekur þá út leikbann sem hann fékk fyrir að hafa verið bókaður fimm sinnum á leiktíðinni. Lucas fékk gult spjald gegn Manchester United um síðustu helgi og það spjald kom honum í bann. Bannið er þó aðeins einn leikur.
Lucas, sem var fyrirliði Liverpool gegn Rangers á þriðjudagskvöldið, hefur spilað vel á leiktíðinni þó svo að ekki hafi hann náð sér á strik gegn Manchester United. Ekki er gott að segja hver leysir Lucas af á morgun.
Jordan Henderson kom inn á fyrir Brasilíumanninn gegn United og spilaði mjög vel enda í sinni bestu stöðu. Jay Spearing kemur líka til álita en við sjáum til með hvað Kenny Dalglish telur réttast í stöðunni.
TIL BAKA
Lucas Leiva í banni
Brasilíumaðurinn Lucas Leiva verður fjarri góðu gamni á morgun þegar Liverpool mætir Norwich City. Hann tekur þá út leikbann sem hann fékk fyrir að hafa verið bókaður fimm sinnum á leiktíðinni. Lucas fékk gult spjald gegn Manchester United um síðustu helgi og það spjald kom honum í bann. Bannið er þó aðeins einn leikur. Lucas, sem var fyrirliði Liverpool gegn Rangers á þriðjudagskvöldið, hefur spilað vel á leiktíðinni þó svo að ekki hafi hann náð sér á strik gegn Manchester United. Ekki er gott að segja hver leysir Lucas af á morgun.
Jordan Henderson kom inn á fyrir Brasilíumanninn gegn United og spilaði mjög vel enda í sinni bestu stöðu. Jay Spearing kemur líka til álita en við sjáum til með hvað Kenny Dalglish telur réttast í stöðunni.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

