| Sf. Gutt

Charlie og Martin í bann

Þeir Charlie Adam og Martin Skrtel fuku af leikvelli gegn Tottenham á sunnudaginn. Þeir fara því auðvitað beint í leikbann en þó ekki langt því um er að ræða eins leiks bann.

Þeir félagar missa af Deildarbikarleiknum við Brighton á miðvikudagskvöldið en geta spilað næsta deildarleik sem verður við Wolves á laugardaginn. Það á þó eftir að koma í ljós hvort þeir verða valdir í liðið í þeim leik því ekki stóðu þeir sig vel á sunnudaginn. 

White Hart Lane er líklega ekki í uppáhaldi hjá Martin Skrtel. Núna var hann rekinn af velli og á síðustu leiktíð skoraði hann sjálfsmark þegar Liverpool tapaði 2:1. Hann skoraði reyndar í rétt mark líka í þeim leik.  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan