| Sf. Gutt

Eitt jákætt!

Leikmenn og stuðningsmenn Liverpool voru ekki upplitsdjarfir á sunnudaginn enda stórtap staðreynd. Kenny Dalglish, sem mátti þola sitt stærsta tap sem framkvæmdastjóri Liverpool, sá þó eitt jákvætt við leik Liverpool og Tottenham Hotspur. En hvað skyldi það hafa verið?

Blaðamaður spurði Kenny Dalglish, eftir leikinn, hvort eitthvað hefði verið jákvætt við hann. Svarið var stutt og laggott. ,,Stuðningsmenn okkar voru frábærir!"

Það vantaði ekki stuðninginn og stuðningsmenn Liverpool sungu You´ll Neverr Walk Alone í þann mund sem flautað var til leiksloka! Það var reyndar magnað að heyra þjóðsöngin á þeim tímapunkti. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan