| Heimir Eyvindarson
Daniel Agger leiddi félaga sína í danska landsliðinu til sigurs gegn Norðmönnum í kvöld. Dirk Kuyt, Stewart Downing og Martin Skrtel voru einnig í eldlínunni með þjóðum sínum.
Danir unnu öruggan 2-0 sigur á Norðmönnum á Parken í kvöld. Daniel Agger var fyrirliði danska liðsins í kvöld og lék allan leikinn. Danir eru þar með í efsta sæti H riðils fyrir lokauppgjörið gegn Portúgölum.
Þess má geta að John Arne Riise, sem nú spilar með Fulham, lék í um það bil klukkutíma fyrir Norðmenn í leiknum í kvöld, en hann er nýkominn af stað eftir meiðsli.
Dirk Kuyt spilaði sömuleiðis allan leikinn fyrir Hollendinga sem sigruðu Finna 2-0. Hollendingar eru langefstir í E riðli og öruggir í lokakeppnina á næsta ári.
Stewart Downing lék í 79 mínútur fyrir Englendinga sem sigruðu Wales 1-0 á Wembley. Ashley Young skoraði markið eftir fyrigjöf frá Downing. Andy Carroll kom inn á í blálokin og lék í um það bil tvær mínútur. Craig Bellamy lék ekki með Walesverjum þar sem hann tók út leikbann í kvöld. Englendingar tróna nokkuð örugglega á toppi G riðils, sex stigum á undan Svartfellingum, sem eiga reyndar einn leik til góða.
Martin Skrtel spilaði allan leikinn fyrir Slóvaka sem steinlágu óvænt 4-0 fyrir Armeníu á heimavelli! Slóvakar eru sem stendur í 4. sæti B riðils og eiga enn veika von um að komast áfram, takist þeim að sigra efsta lið riðilsins, Rússa, í síðasta leiknum.
Skotar héldu lífi í vonum sínum um að komast í úrslitakeppnina næsta sumar með því að sigra Litháa 1-0. Charlie Adam er meiddur og var þessvegna ekki með og Danny Wilson komst ekki í hópinn. Skotar eru í 3. sæti I riðils, tveimur stigum á eftir Tékkum sem eru í 2. sæti þegar báðar þjóðir eiga tvo leiki eftir.
Spánverjar eru langefstir í I riðli. Þeir burstuðu Liecthenstein 6-0 í kvöld og eru þar með öruggir áfram í úrslitakeppnina. Pepe Reina var ekki í hópnum í kvöld.
Lucas Leiva lék allan leikinn með Brasilíu þegar Brassar unnu Gana 1:0 í vináttuleik í London á mánudagskvöldið.
Sama kvöld vann enska undir 21. árs liðið stórsigur 4:1 á Ísrael. Þeir Jonjo Shelvey og Andre Wisdom léku báðir í fyrsta sinn í þessum aldursflokki. Jordan Henderson fékk frí í leiknum og Martin Kelly var meiddur en þeir tveir hefðu getað verið í liðinu. Reyndar er ekki útilokað að Martin hefði verið valinn í aðalliðið hefði hann verið heill.
TIL BAKA
Landsleikjafréttir
Daniel Agger leiddi félaga sína í danska landsliðinu til sigurs gegn Norðmönnum í kvöld. Dirk Kuyt, Stewart Downing og Martin Skrtel voru einnig í eldlínunni með þjóðum sínum.Danir unnu öruggan 2-0 sigur á Norðmönnum á Parken í kvöld. Daniel Agger var fyrirliði danska liðsins í kvöld og lék allan leikinn. Danir eru þar með í efsta sæti H riðils fyrir lokauppgjörið gegn Portúgölum.
Þess má geta að John Arne Riise, sem nú spilar með Fulham, lék í um það bil klukkutíma fyrir Norðmenn í leiknum í kvöld, en hann er nýkominn af stað eftir meiðsli.
Dirk Kuyt spilaði sömuleiðis allan leikinn fyrir Hollendinga sem sigruðu Finna 2-0. Hollendingar eru langefstir í E riðli og öruggir í lokakeppnina á næsta ári.
Stewart Downing lék í 79 mínútur fyrir Englendinga sem sigruðu Wales 1-0 á Wembley. Ashley Young skoraði markið eftir fyrigjöf frá Downing. Andy Carroll kom inn á í blálokin og lék í um það bil tvær mínútur. Craig Bellamy lék ekki með Walesverjum þar sem hann tók út leikbann í kvöld. Englendingar tróna nokkuð örugglega á toppi G riðils, sex stigum á undan Svartfellingum, sem eiga reyndar einn leik til góða.
Martin Skrtel spilaði allan leikinn fyrir Slóvaka sem steinlágu óvænt 4-0 fyrir Armeníu á heimavelli! Slóvakar eru sem stendur í 4. sæti B riðils og eiga enn veika von um að komast áfram, takist þeim að sigra efsta lið riðilsins, Rússa, í síðasta leiknum.
Skotar héldu lífi í vonum sínum um að komast í úrslitakeppnina næsta sumar með því að sigra Litháa 1-0. Charlie Adam er meiddur og var þessvegna ekki með og Danny Wilson komst ekki í hópinn. Skotar eru í 3. sæti I riðils, tveimur stigum á eftir Tékkum sem eru í 2. sæti þegar báðar þjóðir eiga tvo leiki eftir.
Spánverjar eru langefstir í I riðli. Þeir burstuðu Liecthenstein 6-0 í kvöld og eru þar með öruggir áfram í úrslitakeppnina. Pepe Reina var ekki í hópnum í kvöld.
Lucas Leiva lék allan leikinn með Brasilíu þegar Brassar unnu Gana 1:0 í vináttuleik í London á mánudagskvöldið.
Sama kvöld vann enska undir 21. árs liðið stórsigur 4:1 á Ísrael. Þeir Jonjo Shelvey og Andre Wisdom léku báðir í fyrsta sinn í þessum aldursflokki. Jordan Henderson fékk frí í leiknum og Martin Kelly var meiddur en þeir tveir hefðu getað verið í liðinu. Reyndar er ekki útilokað að Martin hefði verið valinn í aðalliðið hefði hann verið heill.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

