| Grétar Magnússon

Næsti Suarez ekki langt undan ?

Í burðarliðnum er samstarf milli Liverpool og úrúgvæska liðsins Nacional þar sem efnilegir leikmenn hjá síðarnefnda liðinu geta fengið tækifæri með Liverpool.

Damien Comolli sagði frá þessu í viðtali á opinberri heimasíðu félagsins í tilefni af því að gengið var frá kaupunum á Sebastian Coates í lok ágúst.

Comolli og forráðamenn Nacional tóku upp umræður um frekara samstarf og Comolli skýrir betur frá því:  ,,Ég verð að þakka fólkinu hjá Nacional, stjórnarmenn þar og stjórnarformanninn vegna þess að þeir hafa allir verið mjög hjálpsamir.  Þeir reyndu að aðstoða leikmanninn (Coates) til að uppfylla ósk sína, sem var að koma hingað."

,,Þeir reyndu að finna lausn á málinu með okkur.  Við höfum nú myndað sterk tengsl við þá vegna þess að bæði Luis og Sebastian Coates hófu sinn feril hjá þeim og þeir stigu sín fyrstu skref í knattspyrnunni í akademíunni þar."

,,Við erum að ræða einhverskonar samstarf við þá sem gæti verið komið á fullt eftir nokkur ár, við munum sjá hvort að einhverjir toppleikmenn séu á mála hjá þeim.  Kannski getum við hjálpað Nacional að bæta umgjörðina hjá sér og í staðinn fengið unga og efnilega leikmenn til Liverpool."

,,Á Copa America í sumar voru 14 leikmenn af 23 í úrúgvæska landsliðinu sem á einhverjum tímapunktu höfðu spilað með Nacional eða verið uppaldir þar.  Það er stórkostleg tölfræði fyrir akademíuna þeirra."

,,Þetta er því mjög áhugavert fyrir okkur.  Við erum nú þegar nokkuð vel tengdir við Suður-Ameríku í gegnum Lucas, Maxi og Luis.  Kaupin á Luis hafa tekist svona líka frábærlega - og ég er viss um að það sama gildir um Coates - og hví ættum við ekki að reyna að gera enn betri kaup með því að kaupa fleiri leikmenn frá Nacional ?"

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan