| Sf. Gutt

Raul meiddur

Einu vonbrigðin í gærkvöldi í Exeter voru meiðslin hjá Raul Meireles. Hann verður líklega eitthvað frá eftir því sem Kenny Dalglish sagði eftir leikinn.

,,Hann meiddist á viðbeini en við vitum ekki hversu lengi hann verður frá. Ég gæti þó trúað að við verðum án hans í nokkrar vikur. Ég veit ekki læknisskilgreininguna á þessu. Hann meiddist bara á viðbeini þegar hann datt á það."

,,Þetta er svekkjandi. Það skiptir engu máli hvort hann var að spila vel eða ekki. Það er einfaldlega svekkjandi að meiðast svona. Okkur þykir þetta miður en ég er viss um að mestu vonbrigðin eru hjá Raul sjálfum."

Það kemur væntanlega fljótlega í ljós hversu lengi Raul verður frá en eftir umferðina í deildinni um helgina kemur landsleikjahlé. Ef heppnin er með þá verður Raul kannski tilbúinn þegar því lýkur. 

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan