| SSteinn

FC Gomel - Liverpool í beinni á Górillunni ?

Sjónvarpsréttindamálin í undankeppni Evrópudeildarinnar eru þannig að það er í höndum hvers klúbbs fyrir sig að selja réttinn og það eru einungis tvær sjónvarpsstöðvar sem við vitum um sem hafa keypt réttindin að þessum leik. Það eru Setanta Sports (á Írlandi) og Premier Sports (í Bretlandi) sem er svona "Pay Per View" stöð. Það er verið að skoða það uppá Górillu hvort þessar stöðvar nást þar, ef ekki þá munum við finna einhvern góðan straum á leikinn og keyra þetta þannig í gegn.

Við vonum að sjálfsögðu að eitthvað af þessu gangi uppi ogr þá mun þessi leikur vera í beinni útsendingu á heimavelli Liverpoolklúbbsins, Úrillu Górillunni á Stórhöfða.

Tilboð verða að sjálfsögðu í gangi fyrir félagsmenn í klúbbnum og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem vettlingi geta valdið, að mæta og leggja sitt af mörkum við að mynda hina rómuðu Liverpool stemmningu.  Með framvísun skírteinis, fá meðlimir klúbbsins 25% afslátt af öllum veitingum á staðnum.

Nú er um að gera að klæða sig upp í sinn fínasta Liverpool klæðnað og mæta á þennan flottasta sportbar landsins.  Við hvetjum fólk að sjálfsögðu til að mæta tímanlega.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan