| Sf. Gutt

Enn slegist um Daniel Ayala

Enn er slegist um Daniel Ayala. Um síðustu helgi var talið næsta víst að hann færi til Hull City enda búið að samþykkja tilboð þaðan. Svo kom Swansea City inn í myndina og enn á ný er búið að bjóða í hann. Nú er það annað nýtt lið í efstu deild sem vill fá Spánverjann.

Vefsíða BBC greinir frá því í dag að Norwich City hafi gert Liverpool tilboð í spænska miðvörðinn. Paul Lambert, framkvæmdastjóri Norwich, hefur staðfest tilboð Norwich og er hermt að tilboðið sé upp á 800.000 sterlingspund. Forráðamenn Hull telja að Daniel muni ekki koma þangað fyrst lið úr efstu deild séu búin að sýna honum áhuga.

Á meðfylgjandi mynd sést Daniel kljást við Ryan Babel á æfingu stuttu eftir að Liverpool keypti hann frá Sevilla. Daniel hefur lengi þótt með efnilegri varnarmönnum Liverpool og hefur leikið með undir 21. árs landsliði Spánar. 

Í sambandi við varnarmenn má geta þess að staðarblaðið Echo greinir frá því í dag að Liverpool hafi ekki hug á að reyna að kaupa Scott Dann miðvörð Birmingham City. Scott hefur verið orðaður við Liverpool í allt sumar en hann kemur ekki til Liverpool sé að marka þessa frétt.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan