| Heimir Eyvindarson

Liverpool samþykkir boð Hull í Ayala

Liverpool sendi frá sér fréttatilkynningu í dag, þess efnis að boði Hull City í Daniel Ayala hafi verið tekið.

Eins og við höfum sagt frá hér á síðunni sendi Hull City inn formlegt kauptilboð í Spánverjann unga fyrir helgina. Í hálfleik í leik Liverpool og Valencia tilkynnti Liverpool síðan að boðinu hefði verið tekið.

Líklegt verður að teljast að Daniel og Hull nái saman um kaup og kjör leikmannsins, en hann er ekki ókunnugur í herbúðum Hull þar sem hann var á láni hluta síðustu leiktíðar. Til gamans má geta þess að Daniel lék með Liverpool í æfingaleik á móti Hull um daginn.

Talið er að kaupverðið sé í kringum eina milljón punda, en það hefur þó ekki verið staðfest. Ítrekað skal að ekki hefur verið gengið frá vistaskiptunum.

Keppni í næst efstu deild hófst í gærkvöldi en þá tapaði Hull 0:1 á heimavelli fyrir Blackpool.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan