| Grétar Magnússon
Martin Skrtel er meiddur á kálfa og mun líklega ekki spila gegn Sunderland þann 13. ágúst. Hann hefur ekkert leikið með liðinu á undirbúningstímabilinu.
Skrtel hefur dregið sig út úr landsliðshópi Slóvaka sem eiga að spila vináttu leik við Austurríki í næstu viku og ansi ólíklegt er að hann nái sér góðum fyrir fyrsta leik í Úrvalsdeildinni.
,,Ég meiddist aftur á föstudaginn," sagði Skrtel. ,,Ég fann fyrir miklum sársauka í fætinum og er því aftur kominn til læknanna í meðferð. Ég veit ekki hversu langan tíma þetta tekur. En ég geri mitt besta til að koma sem allra fyrst aftur."
Skrtel spilaði allar mínútur í öllum leikjum liðsins á síðasta tímabili og fjarvera hans í vörninni er því þónokkuð áfall fyrir Kenny Dalglish. Þess má þó geta að Fabio Aurelio hefur snúið aftur til æfinga eftir smávægileg meiðsli.
,,Fabio er að æfa núna en Martin hefur ekki hafið æfingar ennþá og við verðum að bíða og sjá," staðfesti Dalglish á fréttamannafundi.
TIL BAKA
Martin Skrtel missir líklega af fyrsta leik
Martin Skrtel er meiddur á kálfa og mun líklega ekki spila gegn Sunderland þann 13. ágúst. Hann hefur ekkert leikið með liðinu á undirbúningstímabilinu.Skrtel hefur dregið sig út úr landsliðshópi Slóvaka sem eiga að spila vináttu leik við Austurríki í næstu viku og ansi ólíklegt er að hann nái sér góðum fyrir fyrsta leik í Úrvalsdeildinni.
,,Ég meiddist aftur á föstudaginn," sagði Skrtel. ,,Ég fann fyrir miklum sársauka í fætinum og er því aftur kominn til læknanna í meðferð. Ég veit ekki hversu langan tíma þetta tekur. En ég geri mitt besta til að koma sem allra fyrst aftur."
Skrtel spilaði allar mínútur í öllum leikjum liðsins á síðasta tímabili og fjarvera hans í vörninni er því þónokkuð áfall fyrir Kenny Dalglish. Þess má þó geta að Fabio Aurelio hefur snúið aftur til æfinga eftir smávægileg meiðsli.
,,Fabio er að æfa núna en Martin hefur ekki hafið æfingar ennþá og við verðum að bíða og sjá," staðfesti Dalglish á fréttamannafundi.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

