| Heimir Eyvindarson

Lucas og Luiz komnir í 8 liða úrslit

Bæði Uruguay og Brasilía verða með í 8 liða úrslitum Copa America keppninnar um helgina.

Luis Suarez og félagar í Uruguay unnu 1-0 sigur á Mexikó í síðasta leik sínum í  riðlakeppninni. Sigurmarkið kom frá Alvaro Pereira á 14. mínútu.

Uruguay hafnaði í 2. sæti C-riðils, á eftir Chile, og mætir engum öðrum en gestgjöfunum, Argentínu, í 8 liða úrslitum á laugardaginn.

Lucas Leiva og félagar í Brasilíska landsliðinu sigruðu Equador 4-2 í síðasta leiknum í B-riðli þar sem Pato og Neymar skoruðu 2 mörk hvor.

Brasilía sigraði B-riðilinn og mætir Paraguay í 8 liða úrslitum á sunnudaginn.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan