| Heimir Eyvindarson

Adam verður númer 26

Charlie Adam verður í treyju númr 26 hjá Liverpool, rétt eins og hjá Blackpool. Þökk sé Jay Spearing.

Charlie Adam óskaði eftir því að fá að bera sama númer á bakinu og hann gerði hjá Blackpool. Jay Spearing, sem var númer 26 á síðustu leiktíð, brást vel við beiðni hins nýja félaga síns.

,,Jay var svo góður að eftirláta mér 26", segir Adam á Twitter.

Ekki hefur enn verið gefið út hvaða númer Spearing fær á bakið.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan