| Heimir Eyvindarson

Stoke með tilboð í Poulsen og Ngog?

Tony Pulis stjóri Stoke mun vera að undirbúa boð í Christian Poulsen og David Ngog, ef marka má fréttir This is Staffordshire í dag.

Pulis segir í samtali við blaðið að hann reikni með að stærri félögin verði mjög dugleg á leikmannamarkaðnum í sumar. Það þýði að þau verði að losa sig við einhverja leikmenn.

,,Nú er bara spurningin hvað þarf að borga fyrir alla þessa leikmenn sem komast ekki að hjá liðum sínum", segir Pulis.

,,Ég trúi því ekki að félögin séu tilbúin til þess að láta menn sem eru oft með svimandi há vikulaun sitja aðgerðalausa á bekknum eða jafnvel utan hópsins tímabil eftir tímabil."

,,Það er tvennt í stöðunni. Annað hvort gerist ekkert á markaðnum vegna þess að stóru liðin kjósa að halda háum verðmiða á þessum leikmönnum. Ef liðin taka hinsvegar ákvörðun um að lækka verðið á þessum leikmönnum þá geta félög eins Stoke látið til sín taka."

Bæði Poulsen og Ngog hafa lítið fengið að spila eftir að Dalglish tók við Liverpool og þessvegna er nokkuð ljóst að þeir eru falir fyrir rétt verð.

Christian Poulsen mun vera ofar á óskalista Pulis en Ngog, ef eitthvað er að marka þessar fréttir úr Staffordsskíri. Leikstíll Danans er talinn henta Stoke ágætlega og þá fylgir það fréttinni að félagi Poulsen í danska landsliðinu, markvörðurinn Thomas Sørensen, hafi rætt við bæði Poulsen og Pulis um hugsanleg vistaskipti landa síns.

Við sjáum hvað setur.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan