| Sf. Gutt
Lucas Leiva var, á dögunum, valinn leikmaður ársins hjá aðalliði Liverpool í netkosningu opinberrar heimasíðu Liverpool. Lucas fékk 40% atkvæða. Dirk Kuyt kom annar með 25%, Jose Reina þriðji með 10%, fjórði var Raul Meireles og í fimmta sæti var Luis Suarez. Alls voru 129.774 atkvæði greidd í kosningunni.
Lucas var að sjálfsögðu ánægður með þessa miklu viðurkenningu stuðningsmanna Liverpool. ,,Þetta sýnir að þeir kunna virkilega að meta þá vinnu sem ég legg á mig fyrir liðið og ég mun ekki breyta neinu. Ég legg mig alltaf allan fram í hverjum einasta leik og reyni að gera góða hluti fyrir þetta félag. Mér líður mjög vel og vil vera sigursæll."
,,Mér finnst að ég sé að bæta mig á hverri einustu leiktíð en þessi hefur verið sérstök fyrir mig því ég hef náð að sýna stöðugleika. Honum hef ég verið að leita eftir á undangengnum keppnistímabilum. Ég er virkilega ánægður með hvernig ég spilaði og mig langar að þakka liðfélögum mínum. Án þeirra hefði ég ekki unnið svona verðlaun. Ég vil líka þakka þjálfaraliðinu fyrir að hjálpa mér á hverjum degi til að taka framförum. Mig langar líka að þakka stuðningsmönnunum fyrir þessa viðurkenningu því hún er mér mikils virði."
Lucas Leiva lék 41 leiki á þessu keppnistímabili og skoraði eitt mark. Alls hefur hann nú leikið 168 með Liverpool og skorað sex mörk.
TIL BAKA
Lucas leikmaður ársins hjá aðalliðinu
Lucas Leiva var, á dögunum, valinn leikmaður ársins hjá aðalliði Liverpool í netkosningu opinberrar heimasíðu Liverpool. Lucas fékk 40% atkvæða. Dirk Kuyt kom annar með 25%, Jose Reina þriðji með 10%, fjórði var Raul Meireles og í fimmta sæti var Luis Suarez. Alls voru 129.774 atkvæði greidd í kosningunni.Lucas var að sjálfsögðu ánægður með þessa miklu viðurkenningu stuðningsmanna Liverpool. ,,Þetta sýnir að þeir kunna virkilega að meta þá vinnu sem ég legg á mig fyrir liðið og ég mun ekki breyta neinu. Ég legg mig alltaf allan fram í hverjum einasta leik og reyni að gera góða hluti fyrir þetta félag. Mér líður mjög vel og vil vera sigursæll."
,,Mér finnst að ég sé að bæta mig á hverri einustu leiktíð en þessi hefur verið sérstök fyrir mig því ég hef náð að sýna stöðugleika. Honum hef ég verið að leita eftir á undangengnum keppnistímabilum. Ég er virkilega ánægður með hvernig ég spilaði og mig langar að þakka liðfélögum mínum. Án þeirra hefði ég ekki unnið svona verðlaun. Ég vil líka þakka þjálfaraliðinu fyrir að hjálpa mér á hverjum degi til að taka framförum. Mig langar líka að þakka stuðningsmönnunum fyrir þessa viðurkenningu því hún er mér mikils virði."
Lucas Leiva lék 41 leiki á þessu keppnistímabili og skoraði eitt mark. Alls hefur hann nú leikið 168 með Liverpool og skorað sex mörk.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

