| Grétar Magnússon

Carroll og Spearing ekki í lokahóp U-21

Tilkynnt var í dag hvaða 23 leikmenn eru í lokahóp Stuart Pearce landsliðsþjálfara U-21 árs liðs Englendinga fyrir Evrópumeistaramótið í Danmörku í júní.

Þeir Andy Carroll og Jay Spearing voru valdir í 40 manna hóp fyrr í mánuðinum en eru ekki í lokahópnum.  ,,Andy verður ekki með vegna meiðsla", sagði Stuart Pearce þegar hópurinn var tilkynntur.

Carroll var ekki með gegn Aston Villa í síðasta leik tímabilsins og Jay Spearing þurfti að fara af velli snemma leiks eftir harða tæklingu frá Nigel Reo-Coker.

Þess má svo að lokum geta að Glen Johnson verður eini leikmaður Liverpool sem var valinn í hóp enska landsliðsins sem mætir Sviss í undankeppni Evrópumóts landsliða á Wembley 2. júní.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan