| Sf. Gutt
Tom Warner stjórnarformaður Liverpool telur að allt sé á réttri leið hjá félaginu. Hann segir þó að löng leið sé fyrir höndum og nú séu menn í grunnbúðum áður en lagt sé í hann upp á toppinn.
,,Ég tel að það sé mikilvægt að við höldum stefnu okkar í rétta átt. Mín tilfinning er sú að ef við værum að leggja upp í göngu á fjallstopp þá myndum við núna vera í grunnbúðum en værum búnir að ná stöðugleika og undirbúa uppgönguna."
,,Það er löng leið eftir og við viljum alls ekki lofa upp í ermina á okkur. Ég held að stuðningsmennirnir finni fyrir nýrri bjartsýni hjá félaginu en við höfum ekki afrekað neitt ennþá sem komið er. Okkur miðar þó í rétta átt."
,,Ég finn fyrir samstöðu og ég hef þá trú að framtíðin verði björt. En það er þó alveg á hreinu að það er löng ferð fyrir höndum. Ég vil koma því áleiðis til stuðningsmannanna að hafa skilning á stöðu mála og sýna þolinmæði á meðan okkur miðar í rétta átt."
Það eru án vafa margir sem stefna á fjöll í sumar og líklega ná flestir settum mörkum. Fjallgangan sem forráðamenn Liverpool eru lagðir af stað í er rétt að byrja en við vonum að gangan sú endi á toppnum!
TIL BAKA
Í grunnbúðum á leið á toppinn!
Tom Warner stjórnarformaður Liverpool telur að allt sé á réttri leið hjá félaginu. Hann segir þó að löng leið sé fyrir höndum og nú séu menn í grunnbúðum áður en lagt sé í hann upp á toppinn.,,Ég tel að það sé mikilvægt að við höldum stefnu okkar í rétta átt. Mín tilfinning er sú að ef við værum að leggja upp í göngu á fjallstopp þá myndum við núna vera í grunnbúðum en værum búnir að ná stöðugleika og undirbúa uppgönguna."
,,Það er löng leið eftir og við viljum alls ekki lofa upp í ermina á okkur. Ég held að stuðningsmennirnir finni fyrir nýrri bjartsýni hjá félaginu en við höfum ekki afrekað neitt ennþá sem komið er. Okkur miðar þó í rétta átt."
,,Ég finn fyrir samstöðu og ég hef þá trú að framtíðin verði björt. En það er þó alveg á hreinu að það er löng ferð fyrir höndum. Ég vil koma því áleiðis til stuðningsmannanna að hafa skilning á stöðu mála og sýna þolinmæði á meðan okkur miðar í rétta átt."
Það eru án vafa margir sem stefna á fjöll í sumar og líklega ná flestir settum mörkum. Fjallgangan sem forráðamenn Liverpool eru lagðir af stað í er rétt að byrja en við vonum að gangan sú endi á toppnum!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

